Hvert eintak einstakt
Allar vörurnar mínar eru handgerðar og því er engin þeirra nákvæmlega eins. Mynstur og smáatriði mótast í vinnuferlinu og gefa hverju verki sinn eigin karakter. Ég legg áherslu á að endurnýta efni sem yrði annars hent eins og glerkrukkurnar í kertaluktunum. Einnig fer ég reglulegar ferðir í góða Hirðirinn og finn gamla, ónýta lampa sem ég geri upp og breyti í eitthvað fallegt og einstakt. Hlýja og birta er minn innblástur í íslenska skammdeginu, Ég nýti macrame hnútaaðferðina í handverkinu mínu og hef þróað vörurnar mínar með þeirri aðferð síðustu ár.