Rigensborg Art sameinar myndlist og handverk þar sem hvert verk er skapað af alúð og hvert eintak hefur sinn eigin karakter.

Um mig

Ég heiti Emilía Rigensborg og er menntaður myndlistamaður. Rigensborg Art er minn skapandi vettvangur þar sem ég sameina myndlist og handverk. Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að skapa og vinn með ólík efni og aðferðir eftir því hvert hugmyndirnar leiða mig. Í myndlistinni fæ ég innblástur frá íslenkri náttúru og dýralífi og eru fuglar í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Ég er lærður grafíker og eru því málverkin mín oft í þeim stíl.